Ég held ég verði nú bara að
vera svolítið montin af sjálfri mér núna.
Mér hefur nú bara aldrei á ævi minni gengið eins vel í skóla!
Ég er búin að vera að taka stöðupróf og skila inn verkefnum og
hópritgerðum og af öllum þessum verkefnum og prófum, (fyrir utan
stærðfræði
) er ég búin að fá frábærar einkunnir!
Í tölvuteikningu hef ég bara
fengið EINA einkunn undir 9 ! og það var 8.8 fyrir algjöra klaufa
villu, báðar ritgerðirnar hafa verið yfir 9 og í grunnteiknungu,
báðum fögum hef ég fengið allt 9 eða yfir, og það er bara vonandi
að það haldi þannig áfram 
Það eru valdagar framundan í
skólanum og ég er að reyna að gera það upp við mig hvort ég ætli að
reyna að ná að útskrifast eftir ár, Vor 2008 eða jólin 2008.
Ef ég ætla að klára eftir ár þá þarf ég að taka 24 einingar á önn
sem er slatti mikið, veit ekki hvort að það sé sniðugt sérstaklega
út af Emelíu, en ef ég tek "fullan skóla" 19 einingar þá á ég bara
10 einingar eftir síðustu önnina og það er ekki einusinni lánshæft.
Verst að geta ekki tekið þetta í sumarskóla líka, þá myndi ég
skella mér í það.
En svo út í annað, þá var Emelía
Ósk að fá rör í eyrun í síðustu viku, og stóð sig alveg eins og
hetja litla skottan mín. Ég er alveg endalaust stolt af henni.
Hún er byrjuð að tala alveg heilan helling og skammast á móti ef ég
skamma hana eitthvað (þá sérstaklega ef hún stendur uppi á
stofuborði) Þá bendir hún á gólfið og gargar: Nidut, já nidut,
núna!!! Bara fyndið!
Svo er hún orðin ótrúlega dugleg að syngja, syngur Allir krakkar og
gamli nói endalaust, og svo þegar hún er spurð hvað hún heiti, þá
segir hún: Emíja Okk Dittjadotti, og pabbi heitir Dittjan og mamma
sín líka
En hún segir Millý þegar henni er sagt það 
Það er greinilegt að pabbinn er uppáhalds 
Vá garnirnar farnar að garga á
mig, verð að fá mér smá að borða og koma mér svo í háttinn.
Passið ykkur svo á kommenta ekki, tölvan gæti bitið ykkur þegar þið
pikkið á komment takkann...